Opnunartímar

Skrifstofutímar   : 8-16 Mán-Fös
Þjónustusímar  : 8-19 Mán-Fös
Þjónustusímar  : Lokað Lau-Sun

IP talan þín er:

38.107.191.88

Tilkynningar

Nýjungar

  • 31/8/09 : Vefhýsingar
    Þann 31. ágúst voru teknar upp nýja áskriftarleiðir í vefhýsingum. Þessar breytingar höfðu í för með sér ódýrari og stærri pakka ásamt því að fá aðgang í stjórnborð. Þetta hentar þeim einstaklingum sérlega vel sem vilja sjá um allt sitt sjálfir.
  • 7/7/08 : g.SHDSL.bis
    Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.

Áríðandi

  • 16/9/09 : Bilun í símkerfi
    Um kl 10:00 kom upp bilun í símkerfi Netsamskipta. Af þeim sökum er ekki hægt að hringja í okkur í augnablikinu en unnið er að viðgerð og búist er við að henni ljúki fljótlega.
  • 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
    Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
Gagnaafritun
Föstudagur, 28 Nóvember 2008 11:33
Netsamskipti ehf. býður uppá gagnaafritun fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Mun þetta vera liður í stærri áætlun fyrirtækisins að bjóða uppá alhliða internetlausnir á góðu verði. Nánar um gagnaafritun hér.
 
Ný þjónustuleið í tengingum
Þriðjudagur, 09 September 2008 14:56

Undanfarna daga hafa farið fram prófanir á nýjum búnaði frá ZyXEL sem mun bjóða fyrirtækjum og heimilum að tengjast með svokölluðum g.SHDSL.bis staðli. Það sem þessi staðall hefur framyfir ADSL er að tengihraði er sá sami í báðar áttir sem auðveldar alla fjarvinnslu og vinnu þar sem úthraði skiptir miklu máli. Einnig er svörun mun betri og fljótari, slíkt hentar t.d. þeim sem spila tölvuleiki á netinu.

Tvær tengileiðir verða í boði, 5.6Mb/s og 11.3Mb/s. Til þess að ná 11.3Mb/s þarf tvær leigulínur og einnig sérstakan g.SHDSL.bis búnað (router) en hann fæst hjá Netsamskiptum. Verðskrána má skoða með því að smella á þennan tengil. Þess þjónustu verður hægt að panta frá og með 5. ágúst 2008 en einnig má geta þess að þessi þjónusta er einungis í boði í Keflavík, Ytri- og Innri Njarðvík.

 
Uppfærsla á neti
Þriðjudagur, 09 September 2008 14:56

Fimmtudaginn 22. maí verður ljósleiðarinn til Símans uppfærður úr 100Mb/s í 1000Mb/s. Þessi stækkun verður framkvæmd eftir kl 17:00 svo það má búast við örstuttri truflun á meðan skipt verður yfir á varasamband til Vodafone. Búist er við að þessi uppfærsla taki 5-10mín í það mesta.

Eftir þessar breytingar verður Netsamskipti tengt með 1000Mb/s ljósleiðara til Símans og svo 100Mb/s ljósleiðara (varasamband) til Vodafone.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Hafðu samband

Ef þig vantar aðstoð þá geturðu annaðhvort hringt í okkur eða haft samband við tæknimenn með því að senda póst á info@netsamskipti.is.

Netsamskipti ehf.

Hafnargata 35 Pósthólf 240
230 Reykjanesbær
Sími: 421 6816 - Fax: 421 6826

Okkar takmark

Okkar takmark er að bjóða uppá bestu þjónustuna, hraðvirkar internet tengingar og hágæða hýsingar af ýmsum gerðum.