Opnunartímar

Skrifstofutímar   : 8-16 Mán-Fös
Þjónustusímar  : 8-19 Mán-Fös
Þjónustusímar  : Lokað Lau-Sun

IP talan þín er:

38.107.191.87

Tilkynningar

Nýjungar

  • 31/8/09 : Vefhýsingar
    Þann 31. ágúst voru teknar upp nýja áskriftarleiðir í vefhýsingum. Þessar breytingar höfðu í för með sér ódýrari og stærri pakka ásamt því að fá aðgang í stjórnborð. Þetta hentar þeim einstaklingum sérlega vel sem vilja sjá um allt sitt sjálfir.
  • 7/7/08 : g.SHDSL.bis
    Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.

Áríðandi

  • 16/9/09 : Bilun í símkerfi
    Um kl 10:00 kom upp bilun í símkerfi Netsamskipta. Af þeim sökum er ekki hægt að hringja í okkur í augnablikinu en unnið er að viðgerð og búist er við að henni ljúki fljótlega.
  • 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
    Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
Nýjar vefhýsingar kynntar 31. ágúst
Föstudagur, 28 Ágúst 2009 15:43

Mánudaginn 31. ágúst verða kynntar nýjar verðskrár og möguleikar í vefhýsingum. Á þetta bæði við um Windows ASP.Net og Linux PHP hýsingar.

 
Breytingar á opnunartíma
Miðvikudagur, 22 Apríl 2009 09:03
Frá og með 20. maí verður breyting gerð á opnunartíma skrifstofu og þjónustusíma. Eftir breytingarnar verður skrifstofan opin frá 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þjónustusíminn verður opinn frá 08:00 til 19:00 alla virka daga en lokað verður um helgar.
 
Breytingar á ADSL Express verðskrá
Fimmtudagur, 08 Janúar 2009 13:33

Breytingar hafa verið gerðar á verðskrá ADSL Express og taka þær gildi nú þegar fyrir nýja viðskiptavini. Breytingarnar taka þó ekki gildi fyrr en 1. mars 2009 fyrir alla núverandi viðskiptavini. Allir núverandi viðskiptavinir fá bréf með útskýringum með næsta reikning sem verður sendur út eftir 20. janúar.

Ástæður þessara hækkana má rekja til hækkandi rekstrarkostnaðar. Reynt hefur verið með öllum mögulegum ráðum að komast hjá þessari hækkun í von um að ástandið mundi batna, en sú varð ekki raunin. Það má hinsvegar taka fram að verðskrá Netsamskipta ehf. hefur verið óbreytt í rúmlega 2 ár og er það okkar markmið að lækka hana aftur um leið og kostur gefst.

Nýju verðskrána má sjá með því að smella hér.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Hafðu samband

Ef þig vantar aðstoð þá geturðu annaðhvort hringt í okkur eða haft samband við tæknimenn með því að senda póst á info@netsamskipti.is.

Netsamskipti ehf.

Hafnargata 35 Pósthólf 240
230 Reykjanesbær
Sími: 421 6816 - Fax: 421 6826

Okkar takmark

Okkar takmark er að bjóða uppá bestu þjónustuna, hraðvirkar internet tengingar og hágæða hýsingar af ýmsum gerðum.