Tilkynningar
Nýjungar
- 31/8/09 : Vefhýsingar
Þann 31. ágúst voru teknar upp nýja áskriftarleiðir í vefhýsingum. Þessar breytingar höfðu í för með sér ódýrari og stærri pakka ásamt því að fá aðgang í stjórnborð. Þetta hentar þeim einstaklingum sérlega vel sem vilja sjá um allt sitt sjálfir. - 7/7/08 : g.SHDSL.bis
Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.
Áríðandi
- 16/9/09 : Bilun í símkerfi
Um kl 10:00 kom upp bilun í símkerfi Netsamskipta. Af þeim sökum er ekki hægt að hringja í okkur í augnablikinu en unnið er að viðgerð og búist er við að henni ljúki fljótlega. - 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
| Tækjasalur |
|
Þegar viðskiptavinur kemur með netþjón í hýsingu er hýsingarsamningur undirritaður áður en netþjónninn er tengdur inná netvirki Netsamskipta. Tækjasalur Netsamskipta er varinn með öryggis- og eldvarnakerfi sem er tengt til Securitas. Einnig er fylgst mjög vandlega með hitastigi í tækjasalnum Tækjasalur Netsamskipta ehf. er búinn fullkomnum kælibúnaði sem sér um að halda hitastigi salsins í kringum 20-22°. Í augnablikinu eru tvær kælipressur sem sjá um að halda salnum köldum, önnur er meira ætluð sem varakæling ef hin skyldi bila. Í boði er aðgangur í varaaflgjafa og uppsetning bakvið Cisco ASA eldvegg og er verð fyrir slíka þjónustu hér fyrir neðan. Þurfi viðskiptavinur að láta opna eða loka fyrir ákveðin port er brugðist við því innan 4 klukkustunda á skrifstofutímum. Slíkar beiðnir skal senda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða með því að hringja í 421-6816. Eldveggjarverð miðast við mánuð og er 4.900kr m/vsk. |
