Tilkynningar
Áríðandi
- 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms. - 11/09/08 : Innskráningar á MSN
Öryggisuppfærsla 1.5.8 er komin út fyrir Joomla 1.5. Við mælum með að þeir sem nota Joomla 1.5 uppfæri vefina sína eins fljótt og auðið er. Þeir sem þurfa aðstoð geta hringt í síma 421-6816 eða sent okkur póst á info@netsamskipti.is.
Nýjungar
- 7/7/08 : g.SHDSL.bis
Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.
| Netþjónahýsing/leiga |
|
Netþjónahýsing Netsamskipta samanstendur af eftirfarandi: • Hver netþjónn fær úthlutað 16 iptölum (14 nothæfar, mögulegt að fá meira) Verð á hýsingu eru miðuð við stærð netþjóns, þ.a.e.s. 1U og 4U. Leigutaki undirritar samning áður en netþjónn er tengdur inná netkerfi Netsamskipta ehf.
Netþjónaleiga er fyrir þá sem eiga ekki netþjón en hafa áhuga á að leigja einn slíkan. Við höfum til leigu mjög öfluga Dell Blade netþjóna og er stutt tæknilýsing á þeim fyrir neðan:
Dell Blade 1855 Í boði eru þjónustusamningar sem gæti hentað þeim sem vilja reka eigin netþjón en hafa ekki til þess kunnáttu. Þá kemur sér vel að geta keypt þjónustu af Netsamskiptum sem sér um að gera það sem leigutaki óskar eftir. Leigutaka er óheimilað að endurselja þjónustu okkar til þriðja aðila. Leigutaki fær vélina uppsetta með því stýrikerfi sem hann óskar eftir og er með öllu óheimilt að breyta uppsetningu þeirra á nokkurn hátt nema með leyfi kerfisstjóra Netsamskipta ehf. |

