Símanúmer
421-6816

Netþjónahýsing

Netþjónahýsing Netsamskipta samanstendur af eftirfarandi:

• Hver netþjónn fær úthlutað 16 iptölur (14 nothæfar, mögulegt að fá meira)
• Innifalið erlent gagnamagn er 6GB á mánuði, innlent gagnamagn er gjaldfrjálst
• Netþjónar eru settir bakvið Cisco ASA eldvegg óski viðskiptavinur eftir því og er þá greitt sérstakt eldveggjagjald.
• Netþjónn er tengdur inná gátt Netsamskipta sem samanstendur af 1Gbps ljósleiðarasambandi til Símans og Vodafone.
• Mögulegt er að setja upp yfirlits þjónustu sem fylgist með ef vélin eða einhver þjónusta á vélinni fer niður.

Verð á hýsingu eru miðuð við stærð netþjóns, þ.a.e.s. 1U, 2U eða 4U.

Þegar viðskiptavinur kemur með netþjón í hýsingu er hýsingarsamningur undirritaður áður en netþjónninn er tengdur inná netvirki Netsamskipta. Tækjasalur Netsamskipta er varinn með öryggis- og eldvarnakerfi sem er tengt til Securitas. Einnig er fylgst mjög vandlega með hitastigi í tækjasalnum

Tækjasalur Netsamskipta ehf. er búinn fullkomnum kælibúnaði sem sér um að halda hitastigi salsins í kringum 20-22°. Í augnablikinu eru tvær kælipressur sem sjá um að halda salnum köldum, önnur er meira ætluð sem varakæling ef hin skyldi bila.

Í boði er aðgangur í varaaflgjafa og uppsetning bakvið Cisco ASA eldvegg og er verð fyrir slíka þjónustu hér fyrir neðan. Þurfi viðskiptavinur að láta opna eða loka fyrir ákveðin port er brugðist við því innan 4 klukkustunda á skrifstofutímum. Slíkar beiðnir skal senda á info@netsamskipti.is eða með því að hringja í 421-6816.

Eldveggjarverð miðast við mánuð og er 4.900kr m/vsk.

Leigutaki undirritar samning áður en netþjónn er tengdur inná netkerfi Netsamskipta ehf.

Í boði eru þjónustusamningar sem gæti hentað þeim sem vilja reka eigin netþjón en hafa ekki til þess kunnáttu. Þá kemur sér vel að geta keypt þjónustu af Netsamskiptum sem sér um að gera það sem leigutaki óskar eftir.

Leigutaka er óheimilað að endurselja þjónustu okkar til þriðja aðila.

Sjá Áskriftar-, Greiðslu- og Hýsingarskilmála.

Netsamskipti ehf.umsóknareyðublað


Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur excepteur sint occaecat cupidatat non

Netsamskipti ehf.innskráningar eyðublað