Exchange 2010

Exchange 1
Pakki fyrir þá sem nota einungis vefpósthús …

Exchange 2
Pakki fyrir þá sem nota vefpósthús og vilja einnig tengjast með Outlook …

Exchange 3
Pakki fyrir þá sem vilja vera með allt það nýjasta. Nota vefpósthús og með leyfi á Outlook 2010 eða Entourage 2011…

Microsoft Exchange er tölvupóstþjónusta sem notast er við í öllum helstu fyrirtækjum landsins, ástæðan fyrir vinsældum Exchange er hve áreiðanlegt, öruggt og lipurt kerfið er. Exchange gerir starfsmönnum þínum kleift að deila milli sín tengiliðum, verkum, dagatölum og tölvupóstsamskiptum. Þú getur notað tölvupóstinn á mörgum tölvum, pósturinn er alltaf sá sami á þeim öllum. Einnig er stuðningur við snjallsíma mjög góður, hann sér ekki einungis um póstinn heldur samkeyrast tengiliðir, dagatöl og verk milli Exchange og snjallsímans
Hvernig er Exchange ólíkt POP3
POP3 tekur einungis á tölvupóstsamskiptum og það á mjög einfaldaðan máta, og getur ekki miðlað upplýsingum um tengiliði, dagatölum og verkum. Sem þýðir að þó þú getir haldið utanum þessar upplýsingar í Outlook með POP3 pósti eru allar upplýsingar geymdar á þinni tölvu og því hætta á að ef eitthvað fer úrskeiðis með vél- eða hugbúnað tölvunnar séu öll gögnin glötuð. Með Exchange eru öll gögnin einnig geymd á okkar netþjónum og því ávallt aðgengileg, hvar sem er, hvenær sem er.
Öryggisafrit
Afritunartaka á póst er með besta mögulega móti og eru öll gögn geymd á spegluðum búnaði ásamt því að eintök eru afrituð út úr húsi daglega og því gögnin í mjög góðum höndum.
Ruslpóst- og Vírusvarnir
Allur póstur sem fer í gegnum Exchange póstþjónana er sjálfkrafa vírus og ruslpóstur skannaður, til að veita bestu vörn sem völ er á.
Sjá Áskriftar-, Greiðslu- og Hýsingarskilmála.

