Tilkynningar

Áríðandi

  • 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara 
    Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
  • 11/09/08 : Innskráningar á MSN
    Öryggisuppfærsla 1.5.8 er komin út fyrir Joomla 1.5. Við mælum með að þeir sem nota Joomla 1.5 uppfæri vefina sína eins fljótt og auðið er. Þeir sem þurfa aðstoð geta hringt í síma 421-6816 eða sent okkur póst á info@netsamskipti.is.

Nýjungar

  • 7/7/08 : g.SHDSL.bis
    Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.
Afritunarsvæði

Netsamskipti ehf. býður uppá afritun fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

 

Einfalt
Afritunarhugbúnaðurinn er mjög einfaldur í notkun og hann er til í íslenskri þýðingu.

Virkni
Eftir að uppsetningu lýkur keyrir hugbúnaðurinn sjálfkrafa í bakgrunni og afritar öll þau gögn sem þú vilt að séu
afrituð. Þú getur einnig valið um að fá staðfestingu daglega í pósti um að afritun hafi heppnast.

Öryggi
Öll gögn eru dulkóðuð og sá eini sem hefur aðgang í þau er sá sem veit dulkóðunarlykilorðið. Gögnin eru svo
geymd í öruggri gagnageymslu Netsamskipta ehf.

 

Stærð      Verð
5GB         3.000kr án vsk
10GB       5.150kr án vsk
15GB       8.120kr án vsk
20GB       9.080kr án vsk

Leitið tilboða í stærri svæði með því að hafa samband á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  eða í síma 421-6816 á skrifstofutíma.

 

Sjá Áskriftar- og Greiðsluskilmála.

Sækja um afritunarsvæði.