Tilkynningar

Nýjungar

  • 31/8/09 : Vefhýsingar
    Þann 31. ágúst voru teknar upp nýja áskriftarleiðir í vefhýsingum. Þessar breytingar höfðu í för með sér ódýrari og stærri pakka ásamt því að fá aðgang í stjórnborð. Þetta hentar þeim einstaklingum sérlega vel sem vilja sjá um allt sitt sjálfir.
  • 7/7/08 : g.SHDSL.bis
    Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.

Áríðandi

  • 16/9/09 : Bilun í símkerfi
    Um kl 10:00 kom upp bilun í símkerfi Netsamskipta. Af þeim sökum er ekki hægt að hringja í okkur í augnablikinu en unnið er að viðgerð og búist er við að henni ljúki fljótlega.
  • 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
    Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
Greiðsluskilmálar

1. Netsamskipti ehf. mun birta opinberlega gjaldskrá fyrir þjónustu á hverjum tíma. Rétthafi getur nálgast gjaldskrána á skrifstofu Netsamskipta ehf., á vefsíðunni www.netsamskipti.is og fengið upplýsingar um hana í síma 421-6816. Netsamskipti getur breytt gjaldskrá fyrir áskrift að internetþjónustu og eða öðrum áskriftarskilmálum með eins mánaða fyrirvara. Slíkt skal tilkynnt á heimasíðu Netsamskipta.

2. Skráður rétthafi ber ábyrgð á greiðslum til Netsamskipta ehf. vegna notkunar sem á sér stað, óháð því hvort rétthafi hafi heimilað notkunina eða ekki.

3. Gjalddagi mánaðarlegra reikninga er 1. hvers mánaðar og eindagi 5. hvers mánaðar. Sé reikningur greiddur eftir eindaga greiðir rétthafi dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. Netsamskiptum ehf. er heimilt að synja rétthafa um þjónustu þegar liðnir eru 30 dagar frá gjalddaga skuldar án þess að hún hafi verið greidd, sbr. skriflega viðvörun þar um á reikningum til viðskiptamanna: “Hafi reikningsupphæðin ásamt dráttarvöxtum ekki verið greidd innan 30 –þrjátíu- daga frá reikningsdegi getur Netsamskipti ehf. synjað rétthafa um frekari þjónustu uns skuldin er að fullu greidd.”

4. Ef greiðsla hefur ekki borist innan þriggja mánaða áskilur Netsamskipti ehf. sér rétt til þess að eyða gögnum viðskiptavina. Einnig áskilur Netsamskipti ehf. sér rétt til að eyða aukanetföngum tengdum pósthólfum fríþjónustu sé aðgangurinn ekki notaður í 3 mánuði samfleytt.

5. Ef rétthafi hefur athugasemdir við reikninga verður hann að láta vita um þær innan 30 daga frá viðtöku reiknings. Að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur.

6. Uppsetning á internethugbúnaði eða stillingum í tölvu notanda er ekki innifalin í tengingu við Netsamskipti. Útköll vegna þjónustu við tengingar skulu vera samkvæmt gildandi gjaldskrá Netsamskipta hverju sinni.

7. Stofn- og breytingargjöld
  ***Stofngjald 0 kr,-
  Flutningsgjald 2.705 kr,-
  Geymslugjöld (allt að 3. mánuðir) 1.512 kr,-
  Rétthafabreyting 2.900 kr,- 
  Leiga á endabúnaði (router) á mán 302 kr,-

*** ef viðskiptavinur segir þjónustu sinni upp innan 6 mánaða frá tengingu þá greiðir hann stofngjald að upphæð 3.900kr,-