Tilkynningar

Áríðandi

  • 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara 
    Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
  • 11/09/08 : Innskráningar á MSN
    Öryggisuppfærsla 1.5.8 er komin út fyrir Joomla 1.5. Við mælum með að þeir sem nota Joomla 1.5 uppfæri vefina sína eins fljótt og auðið er. Þeir sem þurfa aðstoð geta hringt í síma 421-6816 eða sent okkur póst á info@netsamskipti.is.

Nýjungar

  • 7/7/08 : g.SHDSL.bis
    Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.
Áskriftarskilmálar

1.       Netsamskipti veitir internetþjónustu til einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja gegn gjaldi undir nafninu Netsamskipti. Viðskiptavinir skulu vera fjárráða og ekki vera í eldri vanskilum hjá Netsamskiptum

2.       Hver viðskiptavinur fær úthlutað aðgangi sem samanstendur af fimm netföngum ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ), notendanafni og leyniorði. Aðgang þennan má einn sá nota sem um hann sækir. Umsækjandi er ábyrgur fyrir aðganginum. Það er með öllu óheimilt að afhenda lykilorð sitt öðrum aðila. Viðskiptavinir sem tengjast í búnað Netsamskipta býðst að fá til afnota endabúnað þeim að kostnaðarlausu. Við uppsögn þjónustu skilar viðskiptavinur búnaði í því ástandi sem hann fékk hann.

3.       Skipti viðskiptavinur um heimilisfang og vill færa tenginguna á nýja staðinn þarf hann að greiða fyrir það sérstakt flutningsgjald sem rennur óskipt til Landssíma Íslands.

4.       Með internetþjónustu Netsamskipta fylgir safn hugbúnaðar sem hægt er að sækja á vefsíðu Netsamskipta, www.netsamskipti.is, án endurgjalds. Netsamskipti bera á engan hátt ábyrgð á hugbúnaði þessum eða óþægindum sem kunna að koma upp við notkun hans.

5.       Netsamskipti áskilur sér rétt til að færa þjónustu rétthafa yfir á eigið kerfi af kerfi annarra rekstraraðila.

6.       Netsamskipti ber á engan hátt ábyrgð á tjóni sem kann að stafa af notkun tengingar við internetið eða vegna sambandsleysis við það. Þá ber Netsamskipti á engan hátt ábyrgð á tengingu í gegnum þriðja aðila við Netsamskipti.

7.       Aðgangur og afnot netfangs og FTP aðgangs er bundið þeim aðila sem skráður er fyrir aðganginum. Ber hann jafnframt einn ábyrgð á því sem gert er með aðgangi hans. Áskrifandi skal sjálfur sjá um afritunartöku af þeim gögnum sem geymd eru á heimasvæði hans.

8.       Misnotkun á internetaðganginum eða heimasvæði, s.s. birting eða fjöldadreifing ósiðlegs, ólöglegs eða ærumeiðandi efnis varðar við lög. Áskrifanda er óheimilt að vista á heimasvæði sínu efni sem brýtur í bága við íslensk lög.

9.       Áskrifanda ber að öllu leyti að virða þær umgengnisreglur sem settar eru áskrifendum á internetinu, þ.m.t. reglur sem gilda á öðrum hlutum þess og þær notkunarreglur sem heildarsamtök aðila að internetinu setja. Sé áskrifandi fyrirtæki eða félagasamtök skuldbindur hann sig til þess með undirritun sinni a tryggja það að umgengnisreglur þessar og afleiðingar brota á þeim séu brýndar fyrir öllum sem internettenginguna nota.

10.   Viðskiptavinur sér sjálfur um að taka afrit af gögnum sínum sem hann geymir á þjónum Netsamskipta. Gildir þetta bæði um svæði á vefþjónum og póstþjónum. Netsamskipti tekur enga ábyrgð á gögnum sem geymd eru á netþjónum sínum sem kunna að skemmast eða tapast.

11.   Áskrifanda ber að tilkynna uppsögn á internetþjónustu Netsamskipta með bréfi þar sem fram kemur nafn, kennitala og notendanafn áskrifanda eða með tölvupósti frá netfangi áskrifanda. Uppsögn miðast við upphaf nýs reikningstímabil.

12.   Viðskiptavini er ekki heimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina, til dæmis með fjöldapóstsendingum.

13.   Netsamskipti ehf. áskilur sér rétt til að takmarka þjónustu til rétthafa tengingar tímabundið, sé hann uppvís að óhóflegu erlendu niðurhali sem hefur áhrif á tengingar annarra viðskiptavina. Viðkomandi mun þá fá sendan tölvupóst þar sem hann verður varaður við varðandi frekari niðurhals. Bregðist hann ekki við munu Netsamskipti takmarka þjónustuna tímabundið.

14.   Brot á ofangreindum reglum getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.

15.   Netsamskipti áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála án fyrirvara ef þörf krefur.

16.   Netsamskipti áskilur sér rétt til að senda viðskiptavinum póst, bréf og/eða tölvupóst með tilkynningum er varða þjónustuna.