Áskriftarskilmálar
1. Netsamskipti ehf. veitir internetþjónustu til einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja gegn gjaldi undir nafninu Netsamskipti. Viðskiptavinir skulu vera fjárráða og ekki vera í eldri vanskilum hjá Netsamskiptum
2. Hver ADSL viðskiptavinur fær úthlutað aðgangi sem samanstendur af fimm netföngum (netfang@mitt.is, netfang@netfang.is, netfang@rafpostur.is), notendanafni og leyniorði. Aðgang þennan má einn sá nota sem um hann sækir. Umsækjandi er ábyrgur fyrir aðganginum. Það er með öllu óheimilt að afhenda lykilorð sitt öðrum aðila.
3. Skipti viðskiptavinur um heimilisfang og vill færa tenginguna á nýja staðinn þarf hann að greiða fyrir það sérstakt flutningsgjald.
4. Með internetþjónustu Netsamskipta fylgir safn hugbúnaðar sem hægt er að sækja á vefsíðu Netsamskipta, www.netsamskipti.is, án endurgjalds. Netsamskipti bera á engan hátt ábyrgð á hugbúnaði þessum eða óþægindum sem kunna að koma upp við notkun hans.
5. Netsamskipti ehf. áskilur sér rétt til að færa þjónustu rétthafa yfir á eigið kerfi af kerfi annarra rekstraraðila og öfugt.
6. Netsamskipti ehf. ber á engan hátt ábyrgð á tjóni sem kann að stafa af notkun tengingar við internetið eða vegna sambandsleysis við það. Þá ber Netsamskipti á engan hátt ábyrgð á tengingu í gegnum þriðja aðila við Netsamskipti.
7. Aðgangur og afnot netfangs og FTP aðgangs er bundið þeim aðila sem skráður er fyrir aðganginum. Ber hann jafnframt einn ábyrgð á því sem gert er með aðgangi hans. Áskrifandi skal sjálfur sjá um afritunartöku af þeim gögnum sem geymd eru á heimasvæði hans.
8. Misnotkun á internetaðganginum eða heimasvæði, s.s. birting eða fjöldadreifing ósiðlegs, ólöglegs eða ærumeiðandi efnis varðar við lög. Áskrifanda er óheimilt að vista á heimasvæði sínu efni sem brýtur í bága við íslensk lög. Vistun á torrent skrám, hvort sem um ræðir margmiðlunarefni eða hugbúnað til að sækja gögn sem varin eru af höfundarrétti á vefsvæðum er stranglega bönnuð.
9. Áskrifanda ber að öllu leyti að virða þær umgengnisreglur sem settar eru áskrifendum á internetinu, þ.m.t. reglur sem gilda á öðrum hlutum þess og þær notkunarreglur sem heildarsamtök aðila að internetinu setja. Sé áskrifandi fyrirtæki eða félagasamtök skuldbindur hann sig til þess með undirritun sinni a tryggja það að umgengnisreglur þessar og afleiðingar brota á þeim séu brýndar fyrir öllum sem internettenginguna nota.
10. Viðskiptavinur sér sjálfur um að taka afrit af gögnum sínum sem hann geymir á þjónum Netsamskipta. Gildir þetta bæði um svæði á vefþjónum og póstþjónum. Netsamskipti tekur enga ábyrgð á gögnum sem geymd eru á netþjónum sínum sem kunna að skemmast eða tapast.
11. Áskrifanda ber að tilkynna uppsögn á internetþjónustu Netsamskipta með bréfi þar sem fram kemur nafn, kennitala og notendanafn áskrifanda eða með tölvupósti frá netfangi áskrifanda. Uppsögn miðast við upphaf nýs reikningstímabil.
12. Viðskiptavini er ekki heimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina, til dæmis með fjöldapóstsendingum.
13. Netsamskipti ehf. áskilur sér rétt til að takmarka þjónustu til rétthafa tengingar tímabundið, verði hann uppvís að óhóflegu erlendu niðurhali sem hefur áhrif á tengingar annarra viðskiptavina. Viðkomandi mun þá fá sendan tölvupóst þar sem hann verður varaður við varðandi frekari niðurhals. Bregðist hann ekki við munu Netsamskipti takmarka þjónustuna tímabundið.
14. Brot á ofangreindum reglum getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.
15. Netsamskipti ehf. áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála án fyrirvara ef þörf krefur.
16. Netsamskipti ehf. áskilur sér rétt til að senda viðskiptavinum póst, bréf og/eða tölvupóst með tilkynningum er varða þjónustuna.
17. Netsamskipti ehf. áskilur sér rétt til þess að eyða gögnum viðskiptavinar ef reikningar hafa ekki verið greiddir samfellt í 3 mánuði.
