Tilkynningar

Nýjungar

  • 31/8/09 : Vefhýsingar
    Þann 31. ágúst voru teknar upp nýja áskriftarleiðir í vefhýsingum. Þessar breytingar höfðu í för með sér ódýrari og stærri pakka ásamt því að fá aðgang í stjórnborð. Þetta hentar þeim einstaklingum sérlega vel sem vilja sjá um allt sitt sjálfir.
  • 7/7/08 : g.SHDSL.bis
    Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.

Áríðandi

  • 16/9/09 : Bilun í símkerfi
    Um kl 10:00 kom upp bilun í símkerfi Netsamskipta. Af þeim sökum er ekki hægt að hringja í okkur í augnablikinu en unnið er að viðgerð og búist er við að henni ljúki fljótlega.
  • 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
    Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
Spurt og svarað

Seðilgjald - hvernig get ég sparað mér það?
Seðilgjald kr. 250 er innheimt af hverjum sendum greiðsluseðli. Hægt er að spara sér seðilgjaldið með því að greiða reikningana með beingreiðslum banka, boðgreiðslum kortafyrirtækja eða netgreiðslum í heimabanka.

  1. Hvað eru netgreiðslur?
    Reikningar eru sendir rafrænt í heimabankann, enginn gluggapóstur og engin seðilgjöld.
  2. Hvað eru boðgreiðslur?
    Reikningar eru skuldfærðir mánaðarlega af Visa eða MasterCard kreditkorti.
  3. Hvað eru beingreiðslur?
    Reikningar eru skuldfærðir mánaðarlega af bankareikningi. Venjulega sér viðskiptabanki þinn um þetta fyrir þig.
  4. Hvenær fæ ég reikning?
    Netsamskipti sendir út reikninga í lok hvers mánaðar og venjulega er eindagi 5. næsta mánaðar.
  5. Óskiljanlegur reikningur
    Vinsamlega hafið samband við Netsamskipti í síma 421-6816 og reynt verður að greiða úr öllum spurningum og útskýra einstaka liði reikningsins.
  6. Reikningur hefur ekki borist
    Hefur verið breytt um heimilisfang nýlega? Var það tilkynnt? Einnig getur reikningurinn verið seinna á ferðinni en venjulega af eðlilegum orsökum. Vinsamlega hafið samband við Netsamskipti í síma 421-6816, eða senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   til að fá úr því skorið hvort reikningur hafi verið sendur.
  7. Hvernig breyti ég greiðslumáta?
    Viðskiptavinir geta haft samband við starfsfólk Netsamskipta í síma 421-6816 og óskað eftir boðgreiðsluviðskiptum, umsókn um breytingu er að finna á www.netsamskipti.is eða sent tölvupóst á netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru:
  • Nafn
  • Kennitala
  • Heimilisfang
  • Símanúmer
  • Kortanúmer
  • Gildistími

Vegna beingreiðslna þurfa viðskiptavinir að hafa samband við sinn viðskiptabanka sem síðan sendir Netsamskiptum upplýsingar um beingreiðsluviðskiptin.