Tilkynningar
Áríðandi
- 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms. - 11/09/08 : Innskráningar á MSN
Öryggisuppfærsla 1.5.8 er komin út fyrir Joomla 1.5. Við mælum með að þeir sem nota Joomla 1.5 uppfæri vefina sína eins fljótt og auðið er. Þeir sem þurfa aðstoð geta hringt í síma 421-6816 eða sent okkur póst á info@netsamskipti.is.
Nýjungar
- 7/7/08 : g.SHDSL.bis
Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.
| ZyXEL 660HW-61 |
|
Til að tengjast ADSL kerfinu okkar þarft þú að stilla ADSL mótaldið eða ADSL beininn á eftirfarandi hátt: Þjónustusvæði Netsamskipta ehf. VPI: 0 Encapsulation á að vera stillt á PPPoE. Multiplexing á að vera LLC
Primary DNS: 213.181.100.1 Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu.
Þegar beinirinn (router) er stilltur þá er byrjað á því að opna Internet Explorer eða Firefox og slóðin http://192.168.1.1 slegin inn. Þá kemur eftirfarandi valmynd upp. Lykilorðið inná beininn er annaðhvort "1234" eða "12345".
Eftir að lykilorð er slegið inn þá blasir við manni aðalvalmynd í beininum. Við byrjum á að fara í "Wizard setup".
Við viljum hafa stillingarnar alveg eins og myndin sýnir og ýtum því næst á "Next".
Í "Service Name" má setja hvað sem er en í "Username" gluggann þarftu að setja þitt notandanafn sem þú fékkst úthlutað hjá Netsamskiptum. Í "Password" gluggann fer lykilorðið þitt. Aðrar stillingar eiga að vera eins og myndin sýnir. Því næst smellum við á "Next".
Núna smellum við á "Log onto the Internet" og þá ætti beinirinn að byrja að tengjast netinu ef allt er í lagi.
Núna smellum við á "Main Menu" tengilinn efst í vinstra horninu til að komast í aðalvaldmyndina. Undir "Advanced Setup" förum við í "Wireless LAN".
Við veljum efsta tengilinn eða "Wireless LAN" til þess að komast í stillingarnar fyrir þráðlausa netið.
Eina sem þarf að gera þarna er að skíra þráðlausa netið einhverju einstöku nafni sem þú manst og setja "WEP" lykilorð. Byrjum á því að setja eitthvað nafn í "ESSID" gluggann, það verður nafnið á þráðlausa netinu. Því næst setjum við eitthvað lykilorð í "Passphrase" gluggann og veljum "Generate". Þá býr beinirinn til "WEP" lykilorð og setur hann í "KEY1" gluggann. Þetta er lykilinn sem við komum til með að stimpla inn þegar við tengjumst inná okkar þráðlausa net. Athugið samt að það á ekki að nota 0x tölurnar (nema þú sért að nota Mac) heldur bara þær tölur sem koma eftir 0x. Því næst smellum við á "Apply" takkann til að vista breytingarnar. Núna ætti tölvan þín að sjá þráðlausa netið og geta tengst því ef allt er rétt uppsett. |







