Tilkynningar

Nýjungar

  • 31/8/09 : Vefhýsingar
    Þann 31. ágúst voru teknar upp nýja áskriftarleiðir í vefhýsingum. Þessar breytingar höfðu í för með sér ódýrari og stærri pakka ásamt því að fá aðgang í stjórnborð. Þetta hentar þeim einstaklingum sérlega vel sem vilja sjá um allt sitt sjálfir.
  • 7/7/08 : g.SHDSL.bis
    Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.

Áríðandi

  • 16/9/09 : Bilun í símkerfi
    Um kl 10:00 kom upp bilun í símkerfi Netsamskipta. Af þeim sökum er ekki hægt að hringja í okkur í augnablikinu en unnið er að viðgerð og búist er við að henni ljúki fljótlega.
  • 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
    Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
ADSL Express

Til að tengjast ADSL kerfinu okkar þarft þú að stilla ADSL mótaldið eða ADSL beininn á eftirfarandi hátt:

Þjónustusvæði Netsamskipta ehf.

VPI: 0
VCI: 33

Encapsulation á að vera stillt á PPPoE. Multiplexing á að vera LLC


Aðrar upplýsingar:

Primary DNS: 213.181.100.1
Secondary DNS: 213.181.100.2
Póstþjónn: mail.mitt.is
Vefpóstur: http://mail.mitt.is/

Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu.

Þegar beinirinn (router) er stilltur þá er byrjað á því að opna Internet Explorer eða Firefox og slóðin http://192.168.1.1 slegin inn. Þá kemur eftirfarandi valmynd upp. Lykilorðið inná beininn er annaðhvort "1234" eða "12345".

 

 Eftir að lykilorð er slegið inn þá blasir við manni aðalvalmynd í beininum.

 

Til vinstri eru ýmsir valmöguleikar. Við viljum fara í "Wan" hlutann til að byrja með, þar eru allar þær stillingar til þess að koma beininum á netið. Í "Username" setur þú notandanafnið sem þú fékkst úthlutað frá Netsamskiptum og í gluggann fyrir neðan fer lykilorðið. Að lokum þarf að smella á "Apply" takkann til að vista breytingarnar.

 

Til þess að stilla þráðlausa netið þá förum við í "Wireless LAN" vinstra megin sem er rétt fyrir neðan "WAN". Setja þarf hak í "Active Wireless LAN" og velja sér eitthvað nafn á sem þráðlausa netið mun heita, þetta nafn verður það nafn sem tölvan þín mun sjá sem þráðlaust net.

í "Security" veljum við "Static WEP" og setjum eitthvað lykilorð í "Passphrase" gluggann og smellum svo á "Generate" takkann. Þá verður til WEP lykilorð sem þú þarft að stimpla inní tölvuna þegar hún tengist inná þráðlausa netið. Að lokum smellir þú á "Apply" til að vista stillingarnar. Núna ætti tölvan þín að sjá þráðlausa netið og geta tengst því ef allt er rétt uppsett.