Opnunartímar

Skrifstofutímar   : 8-16 Mán-Fös
Þjónustusímar  : 8-19 Mán-Fös
Þjónustusímar  : Lokað Lau-Sun

IP talan þín er:

38.107.191.86

Tilkynningar

Nýjungar

  • 31/8/09 : Vefhýsingar
    Þann 31. ágúst voru teknar upp nýja áskriftarleiðir í vefhýsingum. Þessar breytingar höfðu í för með sér ódýrari og stærri pakka ásamt því að fá aðgang í stjórnborð. Þetta hentar þeim einstaklingum sérlega vel sem vilja sjá um allt sitt sjálfir.
  • 7/7/08 : g.SHDSL.bis
    Þann 7. júlí tókum við í notkun nýjan g.SHDSL.bis búnað í öllum símstöðvum í Reykjanesbæ. Þetta þýðir að við getum byrjað að bjóða uppá tengingar sem hafa sama hraða bæði upp og niður. Þetta mun henta einstaklega vel fyrirtækjum sem reiða sig á hraðvirkt og stöðugt internet við dagleg störf.

Áríðandi

  • 16/9/09 : Bilun í símkerfi
    Um kl 10:00 kom upp bilun í símkerfi Netsamskipta. Af þeim sökum er ekki hægt að hringja í okkur í augnablikinu en unnið er að viðgerð og búist er við að henni ljúki fljótlega.
  • 20/11/08 : Bilun í ljósleiðara
    Kl 5:30 í nótt kom upp bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Af þeim sökum komast notendur Netsamskipta ekki yfir á vefsíður og póst sem hýst er hjá Símanum og notendur Símans komast ekki yfir á vefi og póst hjá Netsamskiptum. Tæknimenn Símans eru að vinna í að laga þessa bilun og von er á að þetta komi upp innan skamms.
Bilun í útlandasambandi
Sunnudagur, 28 Febrúar 2010 09:45

Bilun kom upp í útlandasambandi okkar um kl 1:00 í nótt, unnið er að viðgerðum. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Uppfærsla: Um kl 17:00 var bilunin staðsett milli Skotlands og London. Vinna við að lagfæra ljósleiðarann er í fullum gangi og vonumst við til þess að viðgerð fari að ljúka.

Uppfærsla 2: Um miðnætti komst útlandasamband aftur í lag. Unnið verður að því næstu daga að koma upp varaleiðum svo þetta gerist ekki aftur. Við biðjumst aftur velvirðingar á öllum þeim óþægindum sem þetta kann að hafa haft í för með sér.

 
Breytingar á verðskrám
Mánudagur, 11 Janúar 2010 15:14

Vegna hækkunar á virðisaukaskatti (25,5%) sem tók gildi um áramótin hafa verðskrár Netsamskipta verið uppfærðar.

 
Gleðileg Jól
Fimmtudagur, 24 Desember 2009 14:11

Starfsfólk Netsamskipta óskar viðskiptavinum sínum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Við þökkum fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Hafðu samband

Ef þig vantar aðstoð þá geturðu annaðhvort hringt í okkur eða haft samband við tæknimenn með því að senda póst á info@netsamskipti.is.

Netsamskipti ehf.

Hafnargata 35 Pósthólf 240
230 Reykjanesbær
Sími: 421 6816 - Fax: 421 6826

Okkar takmark

Okkar takmark er að bjóða uppá bestu þjónustuna, hraðvirkar internet tengingar og hágæða hýsingar af ýmsum gerðum.